(*)·´`·.¸.» Undraland ·´`·.¸.»(*)

Evu Laufeyjar blogg

02.12.2006 19:09:42 / Eva =)

v

vv

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 00:12:32 / Eva =)

It's not that you are breaking my heart.. i'm just loosing a friend..

Ég held að engin gæti verið jafn óákveðin og ég er.

Fer í sumarfrí þann 10.Mai og er ekki enn búin að ákveða mig hvort ég ætla að vera  hér á Egilstöðum eða á Akranesi. Mig langar rosalega að vera hérna áfram í sumar og spila fótbolta en svo langar mig líka heim til mömmu og pabba.. En við sjáum hvað setur…

 

 

Vorgleðin var haldin í síðustu viku. Var hún í Atlavík,það var grillað,sungið og djammað.

Það var ótrúlega gaman og vorum við voða heppinn með veður. Enda er sólin búin að skína helmikið á austurland þessa dagana ;)

 

Einnig var uppistand hjá nokkrum piltum hér í ME á fimmtudaginn. Var alveg ótrúlega skemmtilegt. Ooog vitleysan sem vellur uppúr þessum drengjum..

Ég fór oft í  sund í seinustu viku. Nældi mér meirisegja  í smá brúnku! Á föstudaginn var svo ótrúlega  gott veður,17-19 stiga hiti. Skelltum okkur í sund og komu líka svona afskaplega skemmtilegar myndir af okkur í fréttunum,hvursu frábært er það? ;)

 

Allir hér í vistinni voru vaktir svona líka skemmtilega um hálf sex á föstudagsmorgun. Það var semsagt dimmering.. og fullir útskriftanemar í tóka klæðum sungu,öskruðu,köstuðu steinum í gluggana,komu inn á herbegi til að vekja okkur og gleðja,neei bíddu ekki gleðja :)

Een þetta var nú pínu gaman..

Fengum vetrareink.. afhentar. Er mjög sátt við mínar  

Helgin var mjög fín. Ég,Ragna,Gréta og Bergey gistum saman á föstudeginum  sem var voða kosý. Hef ekki hitt þær almennilega lengi svo það var voðalega gott að geta spjallað við þær um heima og geima. Sakna þeirra helmikið =*

Var að vinna á laugardaginn,sunnudaginn og í dag. Reyndi að læra þess á milli. Gleði..gleði..gleði..

Var að vinna á sunnudagskvöld og missti þar af leiðandi af grúppíjukvöldi. Hefði nú heldur betur viljað vera á því. En þær komu nú vinnuna til mín þessar elskur. Mikið hvað ég sakna þessa tíma sem við vorum alltaf saman!

Bestustu tímar án efa =*

Prófin byrja á morgun. Fer í íþróttpróf kl 09.00. Svo á miðvikudaginn er sögupróf og á fimmtudaginn er stærfræðipróf svo er ég komin í helgarfrí. Þá fæ ég nægan tíma til þess að lesa fyrir prófin sem bíða mín eftir helgi.

Aðeins 14 dagar í að stelpan verði sautján.. Bílpróf og læti. Get ei beðið! ;)

En ætli ég fari ekki að drífa mig í háttinn.

Gangi ykkur öllum voðalega vel í prófunum.

Guð geymi ykkur =*


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 22:42:23 / Eva =)

Lokasýning-Miðnætursund-Akureyri-Harðsperrur-Subway

Á fimmtudaginn  var lokasýning á Hárinu sem var dulítið súrt. Á nú eftir að sakna þess að mæta þarna og hafa það gaman með þessum gleðigjöfum sem voru þarna á ferð. Vil þakka ykkur ef þið lesið þetta innilega fyrir góða tíma =*

Eftir sýningu brunuðum við öll til Vopnafjarðar í sund. Ég fór með þeim Katrínu,Eyrúnu,Ástu og Heiðdísi í bíl og var mikið spjalla og fórum við í ,,ég hef aldrei" leikinn sem var mjög áhugaverður og komst maður að því að þetta eru eintómir villingar :) Einnig hættu bremsurnar í bílnum að virka tímabundið en það er bara aukatriði,neei bíddu. Það var dulítið panikk. En sem betur fer fór allt á besta veg :)

Sundið var glæst! Það er sundlaug og tveir pottar sem eru opnir fyrir almenningi allan ársins hring rétt fyrir utan vopnafjörð. Það væri ljúft ef það væru til fleiri sem treystu landsmönnum fyrir slíku.. Þetta var allavega rosalega gaman og mikið djammað. Ég,Ásta og Heiðdís vorum komnar heim til Heiðdísar að ganga sex um morgun og vorum við örlítið þreyttar um átta er við gengum í skólann...  

Á föstudaginn lá leiðin með mfl Hattar á Akureyri að keppa tvo æfingaleiki. Fyrri leikurinn sem var á föstudaginn var á móti Völsungi,leikurinn gekk voðalega brösulega og töpuðum við. En við unnuð þó Þór/Ka í morgun 2-1 og var það voðalega ljúft ;)

Ég,Sara(séð og heyrt stúlka),þórveig og María fórum með Öglu í bíl. Fórum í ,,hver er maðurinn leikinn" sem var mjög svo fyndinn leikur :) Svo þeytti Eva'dj skífum við mikla söngundirtakta hjá stúlkunum... Eurovision eða?

Ég gisti með henni Öglu heima hjá bróður hennar og var það afskaplega notalegt. Ég og Agla leigðum okkur vidjó og spjölluðum um heima og geima langt fram eftir nóttu.     Á laugardaginn skruppum við flestar í smá bæjarrölt og lentum í prinsessuleik í spútnik! Fórum svo allar út að borða og í bíó á nýju myndina með söru jessicu parker,ágæt mynd.

Svo um sex í dag vorum við komnar aftur í héraðið góða sáttar með góða ferð ;)

Ég og Agla skelltum okkur svo áðan út að borða og svo í fótbolta með fulltaf fólki,voða gaman.

Á morgun er vorgleðinn hér í ME. Þá fara allir að grilla í atlavík og leikir og svona. Verður vonandi mikið glens og gaman og allir að syngja saman..

Eeen nú ætla ég að fara að spreyta mig á óendanlega skemmtilegu LKN verkefni.

Elísabet Sara hlær mikið af sínum eigin brandörum á msn. Sem þýðir það að stúlkan er fræg og fyndin :)

Við heyrumst heil kæru lesendur..

-    Drekinn kveður að sinni..

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 02:57:16 / Eva =)

Kóngurinn ?

We can’t go on together
With suspicious minds
And we can’t build our dreams
On suspicious minds...

Veit ekki hvar ég væri án tónlistarinnar hans Elvis. Öll lögin svo falleg,án efa uppáhaldstónlistarmaðurinn minn!

Er gjörsamlega búin að snúa sólarhringnum við. Jeminn eini hvað það verður nú erfitt að fara að vakna í skólann.

Ekki langt í prófin! Prófkvíðinn er farin að láta finna fyrir sér.. En ég vona nú að ég nái þessum blessuðu prófum. Spörning um hvort maður hefði átt að nýta tíman aðeins betur í páskafríinu og læra eitthvað að viti. En nei alltaf gat ég fundið mér eitthvað allt annað að gera í staðinn. En ég lærði þó eitthvað en kannski ekki alveg jafn mikið og ég hefði viljað. ;p

Skellti mér á ball í gær með Evu Kristínu og Thelmu. Á móti sól léku fyrir dansi. Var dulítið vesen að komast inn en það hófst. ÍÍÍskalt úti og löng biðröð!                                                                                         Þetta var mjög fínt kvöld og endaði kvöldið/nóttin á  því að ég,Guðmundur Böðvar og Ísleifur vorum komin á rúntinn með Pálma að ganga sjö í morgun.

Í dag fór ég í afmæli í Reykjavík hjá litlu sætu frænku minni =*

Mér hefur var boðið alveg geysilega spennandi verkefni.                        Kosningar eru á næsta leyti og var mér boðið þar sem ég er í sambandi ungra sjálfstæðismanna að hjálpa til í kosningarbaráttunni. Þá mun ég vera meira og minna í Valhöll þann tíma sem ég  hjálpa til og hlakkar mér ekki lítið til. Hitta alla þá sem eru í hjarta sjálfstæðisflokksins og fá að fylgjast aðeins með þessu en ekki bara í sjónvarpinu. Þannig hver veit nema ég og Davið verðum like this? Neei okay kannski ekki :)

Í kvöld kíkti ég svo út með Báru á línuskauta. Ár og aldir síðan að ég fór síðast á línuskauta,er ekki frá því að það komu nokkur gleðitár því fátt veit ég skemmtilegra en að línuskauta. ;)

Sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn. Mér finnst ekki baun í bala  einsog  það sé að koma sumar.. ískalt og snjóar enn sumstaðar á landinu.                 Einnig er lokasýninginn á Hárinu á sumardaginn fyrsta. Verður bæði súrt og sætt að þessu sé að ljúka. Búin að vera mjög skemmtilegur tími að vera í þessu,frábærir krakkar með eindæmum =*

Slúttum þessu með stæl.. 8)

En ég er orðin þreytt og lúin,hef svosem ekkert merkilegra að segja ykkur krakkar mínir og vona að þið hafið átt ánægjulega páska og hafið fengið páskaegg :)

En ég býð góða nótt =*

 

 Np; Elvis Presley - Always on my mind


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 18:47:35 / Eva =)

Dansa hvað er betra en að dansa?

 Í gær skellti ég mér ásamt fleirum á ball í logalandi,það var bara hið ágætasta ball. Stuðmannabandið held ég að bandið heitir sem lék fyrir dansi voru ansi heitir :)

Það var mikið dansað.. og var ég svo sniðug að fara í nýju stígvélunum mínum þannig fæturnir á mér fengu sko að finna fyrir pínu og kvöl.

Páskafríinu fer senn að ljúka,ekki nema fjórir dagar eftir :(                      Mér langar að vera lengur hér í heimakoti!

Prófin byrja 2.mai og er ég búin 10.mai svo á stelpan afmæli 16.mai og stefni ég að því  að ná þessu blessaða bílprófi og prófunum aðsjálfsögðu. Er ekki búin að vera nógu dugleg að læra í skólabókunum hef meira og minna verið að læra fyrir bílprófið!;p

Hef ekki enn hitt hana Anítu og Thelmu. Sem er frekar slæmt.. En ég er þó búin að hitta hana Báru mína =*

Víí.. fáum páskaegg á morgun. Mikið verður það mikill gleðidagur.. er búin að stara meira og minna á eggið mitt síðan að mamma keypti það.                 Góð saga,ég veit!

Stefni á því að vera á Skaganum í sumar. Sem er bæði gott og vont. Stefán verður ekki hér. En ég get þó verið í faðm fjölskyldunnar. Er búin að sakna þeirra svo mikið að ég held að ég get bara ekki verið lengur í burtu frá þeim. Þó svo að það sé yndislegt að vera á Reyðarfirði =*

En nú ætla ég að kveðja gott fólk því ég er að fara í matarboð hjá ömmu og afa uppí sumarbústað =)  

Endilega kvittið fyrir komuna og gleðilega páska ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 12:42:10 / Eva =)

Gildir einu..

Er komin í sæluna á Skaganum ;)

 

 

 

Bóngóblíða hér upp á Skaga og allt gott af frétta af mér.

 

 

 

Flugið tafðist um fjórar klukkustundir á föstudaginn. Er ekki frá því að flugfélag íslands sé eitt það lélegasta flugfélag sem til er. Við fengum þó ókeypis súkkulaðiköku,en greyið Lilja missti af fluginu sínu til Færeyja.

 

 

 

Lokasýningin var ekki 6.Apríl vegna veikinda. Þannig nú verða tvær lokasýningar, 19 og 20.Apríl. Ég þarf þá að fara fyrr austur en ég ætlaði mér. Eeen það er í góðu ;)

 

 

 

Fór með móður minni í búðir á laugardaginn og gátum við spreðað örlítið þar. Var nú samt dulítið fyrir vonbrigðum með úrvalið í búðunum.. ekki mikið spes til núna. 

 

 

Fór á söngkeppni framhaldskólana. Sigurveig stóð sig ótrúlega vel og átta ég mig ekki alveg á því hví hún lenti ei í neinu sæti,mér finnst það tóm tjara.

Óli Palli útvarpsmaður var yfirdómari og eftir keppni þá  kom hann og  sagði  við okkur að hann hefði látið Sigurveigu í 1.sæti og að hún ætti að halda áfram að syngja því hann ætlaði sko að styðja hana í einu sem og öllu.

 

 

 

Ekki amalegt fyrir hana  Sigurveigu,enda mikil og góð söngkona hér á ferð!

 

 

 

Eyrún,Hjördís og Katrín stóðu sig líka með mikilli prýði. En ég er samt ekki frá því að ef Eyrún hefði skellt sér í hundabúning hefðu þær pottþétt komist í sæti. ;)

 

 

 

Ég fór  í fermingu á sunnudaginn og át á mig gat!  

 

 

 

Stefán kom hingað uppá skaga á mánudaginn og fór í gær :/ Hefði nú viljað að hann væri ennþá hér :*

 

 

 

Ég ætlaði að vera svo dugleg að læra í páskafríinu.. en hvað? Ég er ekki búin að snerta bók. Ætla núna að lúskra á sjálfum mér og fara að koma mér af stað.

 

 

Keyptum páskaegg í gær. YUMMY 

 

   

En ætli fari ekki og læri nú í dulítla stund og fari svo eitthvað út að brasa. Bergur var búin að lofa mér því að spila hættuspilið í kvöld,sjáum til hvernig það fer ;)

En ég ætla að láta þetta duga í bili. Ég óska ykkur öllum gleðilegra páska og hafið þið það notalegt um páskana og borðið mikið af godteríi!

 

Til þess eru páskarnir nú  :)

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 15:55:47 / Eva =)

Strákar eru fyndari en stelpur...

Þessa  alhæfingu komu strákarnir í Hárinu með í gær! Þeir fullyrtu að einungis menn stæðu bakvið allt það fyndna í heiminum í dag. Að einungis ein kona á Íslandi væri fyndin og það væri Silvía Nótt. Er ég svo aldeilis ekki sammála þeim því þetta eru jú karlrembur af verstu gerð ;)

Það sem þeim þykir fyndið er fyndið en ef við stelpurnar þykjum það ekki jafn fyndið þá höfum við ekki húmor. Kannski er það bara afþví við erum hættar að hlægja af kúk og piss brandörum.. En ég skil ekki hvernig það er hægt að alhæfa að einungis karlmenn standi bakvið allt það fyndna.. hvernig í ósköpunum vita þeir það? Júú.. úps ég gleymdi,Þeir eru karlmenn. THE ALMIGHTY

En þeir eru nú  samt ágætir greyin. Jói varð þó verst fyrir barðinu í gær. Ekki gott að lenda í hóp með reiðum ungum hnátum :)

Á fimmtudaginn var magnaður fyrirlestur hér í skólanum! Magnús sem var í utangarðsmönnum og fleiri böndum hélt þennan fyrirlestur um dóp og áfengi. Greyið maðurinn hefur lenti illa í þessum eitur-djöflum en er nú búin að vera edrú í nokkur ár. Hann var ekkert að fegra þennan undirheim svokallaðan heldur sagði hann okkur nákæmlega hvernig þetta er og var ekki að hylja einn né neinn. Sýndi okkur myndband þar sem var tekið viðtöl við marga fíkla.  Ég skil ekki og mun aldrei skilja hvað fær unglinga til þess að prufa þennan fjanda,nú í dag höfum við svo magnaða fræðslu um skaðsemi þeirra en ekkert virðist virka. Öllum er skítsama þar til það verður of seint!

 Eeen jæja. Nenni ekki að pirra mig á þessu. Þýðir ei.

Sýningar voru á fimmtudaginn,föstudaginn,laugardaginn og sunnudaginn. Gengu allar mjög vel og eru aðeins þrjár sýningar eftir. Á eftir að sakna allra krakkana þegar þetta er búið :/

Lokapartýið verður á fimmtudaginn. Ég hlakka mikið til,verður án efa mjög hmm..tjah.. áhugavert ;)

Fór á ball með Outloud á föstudaginn. Þeir voru mjög góðir og skemmti ég mér bara ágætlega.

Á föstudaginn byrjar svo páskafríið. Fer þá heim í kot og er ekkert jafn betra en að vera heima í faðm fjölskyldunnar =*

Ég ætla svo að skella mér ásamt Öglu á söngvakeppni framhaldskólanna að sjá Sigurveig vonandi  syngja sig inní hjörtu þjóðarinnar.                           Svo eftir páska ætlum við svo að fara í menningarferð til akureyrar. Vonandi fara sem flestir og vonandi verður mega-fjör :)

En nú ætla ég að fara uppí herbegi og leggjast undir sæng og horfa á vinkonur mínar frá New York. Þá er ég klárlega að tala um sex in the city.

Ég þakka ykkur fyrir að lesa þetta og endilega kvittið fyrir komuna.           Hafið þið það sem allra best =*

 

 


» 25 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 17:55:40 / Eva =)

Saurlífi

Frumsýningin tókst gríðarlega vel og vorum við öll voða sátt með hana!

Frumsýningarpartýið var hinsvegar eitt það villtasta og trylltasta partý fyrr og síðar! Hef sjaldan skemmt mér jafn vel. Það var dansað og dansað.. og svo rændi hún Lallý mér og við brunuðum til Egilstaða. Rófan vildi þá bara fara til Hafliða svo ég fór í smá ,,teiti" til Péturs þar sem var já.. líf og fjör. Lilja og Katrín voru allavega með þetta :)

Ég og Heiðdís fórum síðan heim til hennar að kúra. Vöknuðum svo eldsnemma á laugardeginum sem átti eftir að verða hin mesti letidagur. Ég,Ásta og Heiðdís létum foreldra Heiðdísar algjörlega stjana við okkur og ekki þótti okkur það leiðinlegt ;)

Svo var sýning á laugardaginn sem heppnaðist ágætlega. Svo var brunað heim í fjörðinn fagra í kotið til hans Stefán míns =*

Sunnudagurinn var mikill letidagur. Enda eru sunnudagur gerðir fyrir leti að mínu mati :)

Það var sýning í gær,ekki mættu margir en þeir sem mættu voru mikil krútt :) Eftir sýninguna komu svo stelpur að biðja um eiginhandaráritanir,algjörar rúsínur :*

Ásta Hlín mín er veik í kvöld svo ekki verður sýning sem er eiginlega fínt,því Þá get ég loksins farið á fótboltaæfingu ;p Svo getur maður lært almennilega og dundað sér eitthvað :)

Ball á föstudaginn með outloud. Ekkert voðalega mikill stemmari í fólkinu hér að mæta. En æææætli maður fari ekki því hann Benidikt er nú einu sinni að spila!

En ætli ég fari ekki að ljúka þessari færslu og vindi mér í lærdóminn!

Þakka kærlega fyrir mig og mæli ég eindregið með því að fólk mæti á sýningar ;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 15:49:23 / Eva =)

Hárið

Frumsýning Ì kvöld! Þetta er búið að líða afskaplega hratt. Einnig er þetta búið vera ótrúlega gaman og mórallinn Ì hópnum gæti ekki verið betri.

 Generalprufan var Ì gær. Gekk ágætlega fyrir utan nokkur mistök,en eiga mistökin ekki að koma á generalprufunni? Svo grétu nokkrir áhorfendur í lokalaginu ,,Lifi Ljósið” það var ósköp sætt að sjá ;)

Þessi vika er búin að líða hratt og örugglega! Búin að einkennast af þreytu og mörgum æfingum. Hef lítið sem ekkert haft tíma til þess að læra svo næstu vikur fara í það að koma sér rækilega í gang í náminu!

Seinasta laugardag var hár-maraþon. Æfðum frá 09.00 til 01.00. Var erfitt en það var einnig mjög gaman. En það var þó ekki langt í smá pirring og þreytu hjá flestum er líða tók á kvöld..

Stefán og félagar hans Ì Concreat fóru að keppa á músíktilraunum núna á miðvikudaginn. Komust þó ekki áfram því miður en áttu það svo innilega skilið. Mér finnst dulítið hallærislegt að salurinn kjósi hljómsveit til að halda áfram. Keppendur frá Reykjavík og þar í nágrenni eru með heilu skólanna í salnum til að styðja við bakið á sér en krakkar útá landi er ekki jafn heppnir. Örlítil ósanngirni í gangi myndi ég segja. En Concreat stóðu sig með prýð =*

Frumsýningapartý í kvöld eða ,,möndlupartý" einsog við erum nú búin að skíra það. Ég hlakka mikið til og verður eflaust mikil gleði ;)

11 sýningar! Mæli eindregið með þvi að þú lesandi góður skelli þér á eina. Frábær söngleikur í alla staði.

 Einnig verður brot úr leikritinu í fréttunum á stöð tvööö í kvöld og einnig brot úr því í fréttunum á rúv á morgun. Fylgist endilega með því :)

 En ég ætla að fara að stússast eitthvað svo við heyrumst fljótlega og endilega látið sjá ykkur í kvöld og á aðrar sýningar.

 Guð geymi ykkur öll og gefi ykkur góða helgi =*

 ,,Eitthvað er einhversstaðar mikilfenglengt.
 En enginn veit hvað bíður okkar.
Því set ég traust mitt á tækni og kvikmyndir
Svo þögnin ekki segi mér
 Sannleikann. Sannleikann. ”

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 18:52:50 / Eva =)

Glerskór og pallíettur

Sælir kæru lesendur nær og fjær. Seint blogga sumir en blogga þó:!: ;)

Hef algjörlega misst ,,touchið" mitt við að blogga. Liggur við að maður slái þessu upp í kæruleysið og hætti bara með þetta blogg. Eeeen mig langar nú smá að halda áfram svo ætli ég geri það nú bara.

Var með svo mikla inflúensu að maginn á mér tók uppá því að fara allur að bólgna og nú þarf ég að taka inn eitthverjar töflur dagsdaglega í nokkrar vikur,frábært. Læknirinn skipaði mér að vera heima þangað til í dag og var ég svo sniðug á miðvikudaginn að ég fór uppá Skaga heim í kot til mömmu =*

Oooog það var yndislegt!

Var annars búin að hreiðra um mig heima hjá honum Stefáni. Hann á alveg yndislega foreldra og er hann sjálfur alveg yndislegur =*

Er núna með leiðinlegan hósta en burtséð frá því þá er öll flensa farin úr mínum líkama sem betur fer. Ógeðsleg flensa!

Flaug hingað til Egilstaða í morgun og fór beint í skólann. Ég er útúr öllum áætlum. Þetta er það hræðilega við að vera veik maður dettur útúr öllu og verð ég sennilega dulítin tíma að komast alveg á sporið í þessu öllu því mikið hefur gengið á. T.d. frumsýning á hárinu eftir rúmar tvær vikur! Vorum ekki búin að gera mikið áður en ég varð veik en þessa vikuna hafa þau víst verið svona dugleg að jááá.. verður skrautlegt að fara á æfingu í kvöld :)

Ég fór í bíó með Mareni og Gumma í síðustu viku á myndina blóðbönd,ég var eiginlega búin að ákveða að þetta myndi verða týpísk íslensk leiðinleg mynd en allt kom fyrir ekki og var þetta hin besta mynd sem ég mæli eindregið með. Ætlaði nú að fara á leikritið Vegas sem Nffa er að sýna, en vegna veikinda þá varð enginn sýning á fimmtudag og ég gat ekki farið í gær vegna þess að ég var að fara til Reykjavíkur. Frekar leiðinlegt!

Ég hlakka til sumarins! Búin að fá mig fullsadda af skítaveðri! Ég hata snjó.Ég hata snjó. Hví getur Kári ekki blásið honum brott? Hvííí? Ætla að njóóóta mín svo í sólinni á Spáni í sumar og reyna að taka smá sól með mér heim í ferðatöskunni,væri það ekki splendið? Eða er ég orðin of ímyndunarveik? ;)  

Nú sit ég hér í eimdarleysi mínu inní tölvustofu. Ætti að vera á fótboltaæfingu núna en vegna Hár-æfingar sem er alveg að fara að byrja þá komst ég ei.

Ég verð nú að segja ykkur dulítið. Hann Beckham vinur minn lét útúr sér eitt það asnalegasta sem ég hef heyrt í langan tíma. ,,Ég verð ringlaður í hausnum þegar ég er að aðstoða son minn við stærfræðiheimanámið hans" Sonur hans er í fyrsta bekk. Hversu ringlaður verður þrítugur maður yfir því? Að hann skuli hafi látið þetta útúr sér finnst mér stórkostlegt. Þetta var nú bara eitthvað sem ég vildi endilega deila með ykkur og vonandi höfðu þið gaman af!

Ætla ég nú að binda enda á þessa færslu. Kvittið endilega fyrir komuna og eigið þið góðan dag =*


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 21:51:49 / Eva =)

It's enough for this wide-eyed wanderer

 Sit hér í eimdarleysi mínu hjá henni Elísubet með 40 stiga hita. Mér líður skelfilega og vildi ég óska þess að ég væri heima í koti hjá mömmu :* Ég hef lítið sem ekkert sofið seinustu tvær nætur og get varla sofið á daginn.

Þessi flensa virðist vera að hrjá meira og minna alla hér klakanum. Ömurlegt alveg. En vona ég svo innilega að þessum veikindum mínum fari að linna.

Ætlaði mér nú mikið um helgina. Fjáröflun,vinna og hár æfingar en auðvitað held ég mér bara inni og hef hvort er eð engann kraft í eitt né neitt.

Stefán er í Reykjavík sem er ennþá ömurlegra =/ En sem betur fer kemur hann heim á morgun.

4. störf sem ég hef unnið um ævinna :

  1. Vinnuskólinn
  2. Afgreiðslukona
  3. Matreiðslukona
  4. Þjálfari

4.bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  1. Clueless
  2. Legally blonde 1&2
  3. Walk the line
  4. Love&basketball

4.staðir sem ég hef búið á :

  1. Akranesi
  2. Sirevág í Noregi 
  3. Hammerfest í Noregi
  4. Reyðarfirði

4. sjónvarpsþættir sem mér líkar :

  1. Friends 
  2. The O.C.
  3. Fotballers wives
  4. Stelpurnar/Strákarnir

4. síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

  1. ME síðuna 
  2. Mbl.is
  3. Vísir.is
  4. fotbolti.net

4.staðir sem ég hef heimsótt í fríum:Danmörk

  1. Frakkland
  2. Danmörk 
  3. Þýskaland
  4. Finnland,svíþjóð ogfl.

4.matarkyns sem ég held uppá :

  1. Maturinn hennar mömmu:* 
  2. Súpurnar hans Stefáns 
  3. Humar
  4. Allskyns tjöbbí matur

4.staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

  1. Heima hjá mömmu og pabba 
  2. Hjá Stefáni
  3. í Noregi 
  4. Á Frönsku riveríunni

4.bloggarar sem ég ætla að klukka:

ég ætla að klukka alla þá sem lesa þetta =*

En ég ætla að reyna að leggja mig smá svo við heyrumst síðar kæru lesendur :)

Np; Elton John - Can you feel the love tonight

Guð geymi ykkur =*


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 22:20:02 / Eva =)

Elska þig ástin mín eina =*

Mikil skelfinga ósköp er ég orðin löt við að blogga! Verð að kippa því í liðinn svo eitthver nenni nú að lesa þetta blogg :)

Uppistandanámskeiðið var brill! Kaffihúsakvöldið var líka mjög skemmtilegt. Átti að halda eitthvert uppstand í tvær mínútur. Getum deilt um hvernig það gekk,ekki eitt af mínum bestu augnablikum get ég lofað ykkur!

Fór heim á síðasta föstudag. Helgin byrjaði vægast sagt skelfilega en sem betur fer fór allt vel og Gummi varð betri. Þakka ég guði fyrir það =*

Dúlleraðist mikið heima í faðm fjölskyldunnar. Ekkert jafn betra!

Fór m.a. í bíó með Mareni og ömmu á myndina walk the line. Frábær mynd sem ég mæli eindregið mér. Það er ekki spurning að tónlistin hjá Johny Cash sé mikið í uppáhaldi þessa dagana:!:

Kom hingað úr bóngóblíðu á Skaganum yfir í þennan skítakulda sem er hér í sveitinni. Snjór og aftur snjór , nenni ekki þessu skítaveðri! Annarhver maður í skólanum veikur svo maður heldur sig inni :)

Mikið búið að vera að gera í skólanum þessa viku en í gær hafði ég þó tíma að fara til Reyðarfjarðar og kúra aðeins hjá Stefáni mínum,mikið var það nú gott =*

Frumsýninginn á hárinu eftir aðeins þrjár vikur sem þýðir að það verður mikið um æfingar og svoleiðis núna :) .

7.april byrjar páskafríið. Þá fer ég heim í kot og ætla ég að draga hann Stefán með mér,hann fær engu um það ráðið ! Múhaha :)

En nú ætla ég að skunda. Góðvinkona mín hún Sandra er komin frá borg óttans og ætla ég að knúsa hana.

Guð geymi ykkur =*

Ef þið eruð ekki búin að sjá þessa mynd svo drífið ykkur á hana:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 21:17:09 / Eva =)

Titill

Upplifði eitt það ömurlegast og hræðilegasta kvöld í gær. Þakka ég guðs englum að ekki fór verr!

Hef sjaldan verið jafn hrædd.

Hef ekki meira að segja nema nýttu hvern dag með fjölskyldu/vinum því þú veist aldrei hvænar þú missir þau.

Mikið er ég feginn að vera heima.

Guð geymi ykkur og varðveiti.


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 22:52:20 / Eva =)

Ég fór gjörsamlega í hnút..

Ætla að byrja á því að óska henni Sigurveigu hjartanlega til hamingju með sigurinn á barkanum , þetta var stórkostlegt hjá henni! Hún söng ,,Show must go on" með Queen og ég hlakka mikið til að sjá hana á aðalkeppninni taka þetta með stæl ;)

Barkinn var frábær! Okkar atriði var nálægt sigri eða svona.. kemur næst :)

Ballið var hinsvegar frekar súrt að mínu mati. Auðvitað skemmtu margir sér konunglega vel en ég hef nú farið á betri böll ;p

Um helgina var svo eurovisionpartý hjá Betu minni og var það ofsa stuð! Var svo bara að dúllerast með honum Stefáni mínum =*

Silvía Nótt keppir vonandi fyrir hönd Íslands! Mér finnst hálf hallærislegt að það sé enn verið að kæra þetta blessaða lag! Það voru nú fleiri lög komin inná netið , vandinn var bara sá að enginn hafði neinn áhuga á því að dl þeim. Svo einfalt er það ;)

ME,VA OG FSA kepptu á íþróttamóti á þriðjudaginn. Ég keppti í bandý og var það meget stuð :) Auðvitað tóku ME-ingar þetta og buðum svo gestum okkar uppá rjómabollur og með því ;)

Hitti Gerði og Irisi sætu =*

Dröslaðist svo á labbir í morgun kl 06.00 og fór á fótboltaæfingu hálf sofandi kl 06.30. Skreið svo aftur uppí rúm og vaknaði kl 10 og fór á ræðumannanámskeið. Ótrúlega skemmtilegt. Áttum að koma með rök fyrir múhameðskopmyndunum. Voru bæði fyndin og góð rök sem komu :)

Klukkan eitt fór ég svo í Yoga. Sem var miklu erfiðara en mig grunaði! En samt sem áður mjög skemmtilegt og fróðlegt.

Fór svo í sund og út að borða með stelpunum. Svo var leiklistaræfing og nú sit ég hér og blogga ykkur til mikilla skemmtunar býst ég við, am i right?! :)

Á morgun er svo uppistanda-námskeiði með Þorsteini Guðmundsyni. Hlakka mikið til þess. Einnig er kaffihúsakvöld og þar ætlum við að syngja eitt lag úr hárinu og sýna smá atriði;p

Eeen ætli þetta sé ekki nóg í kvöld. Blogga um eitthvað áhugaverðara í næsta bloggi.

Góða nótt elskurnar og hafið þið það sem allra best =*


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13